The BIG FAT One
Einstök lög
05.01.2006 05:21:41 / helgi

Where all dead Ramones

Jæja, þá ætla loksins að halda þessa tónleika sem ég er búinn að vera seinka síðan í nóvember. Hljómsveitir sem ég er vonandi kominn með er Palindrome, The Ministry of Foreign Affairs, Evoked, Jericho Fever og Fighting Shit. I adapt peiluðu þannig að ég verð að finna eina hljómsveit í viðbót. Verð að fá hugmyndir frá öllum sem dettur eitthvað í hug, ég er alveg tómur.

Fór í Töflubolta áðan. Það var mjög gaman. Reyndar mikið af gaurum sem voru þarna fyrir og komu svo seinna. Töflubolti er þegar meðlimir spjallborðsins taflan.org hittast og spila saman fótbolta (fyrir þá sem vita það ekki fyrir)

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 21:14:30 / helgi

Party Samúel

Fín áramót. Nenni ekki að skrifa meira um þau en þau voru fín

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2005 16:54:35 / helgi

Shake shake

Ég hata að fá flogaköst. En ég fékk eitt í fyrri nótt og missti bara af öllum deginum

Ég ætla að halda smá quote leik. Ég kem með 5 quote og þið skrifið í comment hvaða quote þetta eru. Þeir sem ætla að vera með, ekki lesa hin commentin, það eyðurleggur bara fyrir.

1.You? Yes, me. Me, me, me. Me too
2.Set for pulsar level five, subsonic implosion factor two. What? Just shoot the damn thing on the count of three.
3.We win, and they get the chicks. That sucks, dude. I'm telling you, it's jobs. We gotta get jobs. Then we get the khakis. Then we get the chicks.
4.How am I funny, like a clown? What is so funny about me? What the FUCK is so funny about me? Tell me. Tell me what's funny. Get the fuck outta here, Tommy. Ha ha. I almost had you.
5.Attention, whoever you are. This channel is reserved for emergency calls only... No fucking shit, lady. Do I sound like I'm ordering a pizza?

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 01:26:47 / helgi

Að eyðileggja allt fyrir öðrum telst greinilega vera list

Ef þið lásuð bloggið hér á undan þá vitið þið hvernig 22.des var fyrir mig. Hér kemur smá framhald

Ég hringi í Viktor til að gá hvað málið sé. Hann var að borða og ætlar að hringja í mig þegar hann er búinn. Þegar hann hringir til baka segir hann mér að þeir séu niðrí æfingarhúsnæði og að þeir spila um svona 23:30. Þetta var allt í padi og leiðindi. En eftir smá stund þá fer ég bara að hugsa: Hey þetta er kannski of mikið mál. Mamma ENNÞÁ hjá Lollu og svona. En svo hringir Viktor í mig og allt í einu smellur þetta allt bara saman. Þannig að ég ákveð að hringja í mömmu og reka á eftir henni. En NEI NEI þá fer hún bara að vera með leiðindi og BANNAR mér að fara á tónleikana. Pabba fannst þetta ekkert mál en NEEEEI, hún varð að banna mér að gera það sem ég ætla að gera til að reyna að bæta daginn bara smá. En nei. Hún hringir 15 min áður en Fræbbblarnir áttu að byrja og segir mér þetta ÞÁ. En hvað það var gaman.

Þannig að ég ætla að vitna í mig, eða í titilinn á þessu bloggi: AÐ EYÐILEGGJA ALLT FYRIR ÖÐRUM TELST GREINILEGA VERA LIST

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 21:55:45 / helgi

Good day madam

Þetta er ekki búið að vera alveg rosalega góður dagur fyrir mig. Ég byrjaði á því að vakna kl. 10 og fara til tannlæknis kl.11. Þetta átti víst að vera síðasta skiptið í einhvern tíma, nema að einhver af fyllingunum detti úr.

Ég sest í stólinn og eftir smá tíma byrjar hún að deyfa mig. Í neðri góm var bara ein tönn og hún var þegar rót fyllt en það þurfti að deyfa holdið. Það tók 4 stungur. Í efri góm voru 2 tennur en þær voru hvorugar rótfylltar. Þannig að deifa þurfti þær báðar, 3 stungur hvor. Þannig að þegar hingað var komið þá er búið að stinga mig á mjög stuttum tíma 10 sinnum í munninn. Hún byrjar á neðri tönninni og það var greinilega ekki nógu mikið eða vel deift að það voru 2 stungur í viðbót þar. Sama sagan var um tönnina vinstra meginn uppi, 2 stungur í viðbót þar. Rétt undir lokinn þá fer ég að finna rosalega mikið til í hægri tönninni uppi en það var svo lítið eftir að ég nennti ekki að gera eitthvað úr því, búinn að vera nógu deifður fyrir, samt ekki. En auðvitað var mikið meira sem kom fyrir, en þetta er bara sagan um mig og mínar deyfingar. En hún segir mér að ég ætti að fara til læknis og láta skoða hvort að ég væri með strektakokka eða eitthvað þannig. Eins og það var ekki búið að djöflast nógu mikið í munninum mínum fyrir.

Ok ég fæ tíma kl. 14:20 hjá einhverjum gaur sem ég þekkti ekki. Þegar ég kem þangað þá sér hann eiginlega strax á mér að ég væri með strektakokka, eitthvað með að ég væri fölur og rauður í framan. Svo var ég aumur eitthvað undir kjálkanum og eitthvað fleira. Þannig að ég var settur á pensilín, ó jey.

Þegar ég kem heim þá tók ég eina töflu og hringi svo í Viktor Orra. Við ætluðum að reyna að komast á minningartónleika Bjarna Móhíkana. Hann var ekki viss með þetta, átti kannski að hætta við tónleikana og eitthvað fleira. Sagðist ætla að hringja seinna um kvöldið þegar hann vissi meira, hvort að við færum á tónleikana eða hvort að við myndum bara fara að gera eitthvað annað. Ég ákvað þá að fara að sofa og láta hringinguna vekja mig, búin að vera strembinn dagur. Ég vakna kl. 8:30 og enginn búinn að hringja. Núna er kl. 21:55 og enginn en þá búinn að svara eða hringja.

Bottom line:
Ekki það æðislegur dagur :evil:

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 16:13:23 / helgi

doenavælkdoenafædslkfjadjólsdsfævnaðeaá eða hvað?

Það að "blogga" er afstæður hlutur. Var fundið upp eitthvað meira "cool" nafn yfir það að halda dagbók á netinu sem allir geta lesið eða?

Undanfarna daga hef ég verið svolítið upptekinn. Ég er búinn að vera gera ýmislegt, nenni ekki einu sinni að nefna eitt dæmi.

Tónleikarnir voru fínir (16.) en ég var alls ekki sáttur við okkar framistöðu. Gerum bara betur næst. En það verður líklega á afmælinu mínu (20 jan.) annað hvort í Undirheimum eða Hellinum. Hvernig líst ykkur á að hafa line up-ið:

I adapt
Severed Crotch
Jericho Fever
Big Kahuna
Evoked
Bandið hans Kalla

Á eftir að tala við Kahuna drengina og Klofið líka en annars er þetta komið á hreint. Þarf að fá leyfir fyrir Undirheimum en ef ég fæ það ekki þá, eins og ég sagði, fer ég bara með þetta í Hellinn.

Ég ætla líka að halda aðra tónleika í febrúar, aðrar hljómsveitir fyrir utan okkur. En þeir verða þá líklega í Hellinum.

Ég fór á aðra tónleika á laugardaginn. Hope Conspiracy og fleiri. Þeir voru algjör snilld. Keypti mér peysu og disk. Ég vill hér með þakka Grétari formlega fyrir að benda mér á að láta þá skrifa á diskinn. ;) 8)

Svo eru jólin að fara að koma, það er hins vegar mál sem skiptir minna máli :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 06:49:28 / helgi

Hey toothfairy



Þá er posterið loksins komið. Ef það er einhver að pæla í því hvað þetta er við hliðinná Evoked, þá er þetta Severed Crotch.

Ég er að fara til tannlæknisins á eftir. :frown::whut: En ætli maður verði ekki að gera þetta.

Næsta helgi á eftir að vera SUPER helgi :P
Fyrst þá er það:
1. Við erum að fara að spila á föstudags kvöldið.
2. Um morguninn á laugardeginum fer ég á staðarnetsveislu heima hjá Arnóri
3. Seinna um kvöldið þá fer ég á eina mest mosh pitt tónleika sem ég mun fara á í lífi mínu. Þórir, I ADAPT, Momentum og HOPE CONSPIRACY. JEEEE

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 19:05:35 / helgi

Time to get on your feet

Þegar ég geri eitthvað, þá geri ég það með stæl. Eða oftast nær. Ég var að vakna JEY. Ég er búinn að snúa sólarhringnum alveg við. En núna er bara vandamálið hvað á ég að gera í kvöld? :frown:



Einhverjar hugmyndir? Engar frá mér, því ég stend á gati gott fólk. En ætli ég fái mér ekki bara rölt eitthvað ef enginn nennir ekki gera neitt. Svo lítið leiðinlegt að gera alltaf það sama kvöld eftir kvöld. But what are you gonna do?

Ef einhver fékk ekki memmóið, þá erum við að fara að spila í Hellinum þann 16. des. Þar verðum við að spila með Severed Crotch, Amor e Morte og Atrum. Endilega checkið á þessum tónleikum, fínustu hljómar og Severed Crotch með nýjan gítarleikara.

Poster vonandi væntanlegt.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 07:17:31 / helgi

I stand alone!

Jafnvel þótt að ég sé alveg gjörsamlega úrvinda eftir þetta ágæta rölt, þá ætla ég að gera blogg um það. Það byrjaði bara vel, ég læddist út svo að ég myndi ekki vekja pabba, var þegar búinn að vera að spila á gítarinn um nóttina (mér til varnar, þá hélt ég að pabbi væri ennþá vakandi) Þegar ég var kominn út ákvað ég að taka stefnuna á Select til að kaupa batterí ef að þessi sem ég var með í spilaranum myndu klárast.



Tekin kl. 04:22

Taka skal fram að allar tímasetningar eru eftir símanum mínum. Eftir Select ákvað ég að taka smá krók uppá gamanið. Ég ákvað að kíkja hvort að það væri búið að skreyta húsið hans Boga. Þannig að ég skundaði þangað.



Tekin kl. 04:29

Það voru komnar nokkrar skreytingar upp hjá honum. Ég var ekki alveg viss hvort að það sæist að þetta væri húsið hans Boga, þannig að ég tók aðra mynd.



Tekin kl. 04:29

Þegar það var búið ákvað ég að rölta niður í móti. Ég kom meira segja við fyrir utan hjá mömmu og Jóhönnu.



Tekin kl. 04:45

Ég vildi ekkert vera að fara inn af því að ég vildi ekki vera að vekja þær. Eftir það fór ég niður í átt að Mjódd. Stopaði til að skoða aðeins Olís. Þeir voru nú ekki með opið eins og Select.


Tekin kl. 04:50

Á myndinni sést meira að segja skugginn minn, og maður sér að ég sé haldandi á símanum mínum að taka mynd. Jæja, þá fór ég framhjá Mjódd og í gegnum undirgöngin sem eru lokuð frá öðrum endanum.



Tekin kl. 04:54

Þaðan lá leið mín upp í móti. Ég ákvað að stoppa og taka mynd af Byko. Bara upp á gamanið.



Tekin kl. 04:59

Þegar ég var komin þangað fann ég að ég væri orðinn svangur. Því tók ég stefnuna á Subway. Það var rosalega gott að koma á Esso. Það var mjög drungalegt í Elliðaárdalnum, lítið af ljósum.



Tekin kl. 05:32

Ég fékk mér bræðing (eins og venjulega) og eftir það hélt ég heim á leið.



Tekin kl. 05:51



Tekin kl. 05:51

Ég held að það sem hélt mér við allan timann var tónlistinn. Ég bjó bara til disk með góðum lögum og hlustaði á hann allan tímann. Lögin voru:

Departed - The Hope Conspiracy
Defiant Hearts - The Hope Conspiracy
For Love - The Hope Conspiracy
Apocalypse Now and Then - Every Time I Die
Inertiactic Esp - The Mars Volta
Upper Decker - The Red Chord
All In A Year - Comeback Kid
Intro - I adapt
Sparks - I adapt
I Wish - I adapt
Disarm - I adapt
Unretrofied - The Dillinger Escape Plan
Symphony of Treble - Blonde Redhead
Water - Blonde Redhead
Arcarsenal - At the Drive-In
One-Armed Scissor - At the Drive-In
Quarantined - At the Drive-In
Gyroscope - In Flames
Falling Down - The Story of the Year
In the Mist - The Psyke Project
45 Tears - The Psyke Project

Flest (eða ef bara ekki öll) þessi lög er hægt að finna einhvern staðar í Lög Vikunnar.

Ef þið ætlið einhvern tímann að gera eitthvað svona, þá er diskur með góðum lögum (að ykkar mati) alveg nauðsynlegur.

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 03:12:32 / helgi

The world is...?

Er það spurning eða er það staðreynd sem er ekki búið að finna svar við?

Hatiði ekki tilfinninguna sem maður fær stundum, að það sé einhver að fylgjast með manni. Ég er búinn að vera með þetta á tilfinningunni í allt kvöld. Hata þetta.

Afhverju að hafa það 17 ára aldurstakmark til að fá bílpróf? Afhverju ekki að reyna að kenna krökkum allt á mun styttri tíma en nú? Þetta tekur upp alveg meira en 10 ár hjá flestum? Allir að tala um að eyða ekki æskunni í eitthvað bull. Er skólinn ekki að eyða tímanum í eitthvað leiðinlegt. Þú þarft greinilega ekkert á þessari kunnáttu að halda fyrr en um svona þrítugt, að margra mati. Það er ekki treyst neinum unglingum, af því að við erum svo miklir "skemmdarvargar" Hafiði, foreldrar, aldrei hugsað ykkur að þið hafið verið að skemma eitthvað fyrir okkur þegar við vorum lítið og við viljum réttlæti? Kannski ekki en samt, hugsiði aðeins áður en þið farið að blaðra um hvað unglingar hafa engar skoðanir á neinu eða gera ekkert nema að éta og sofa. Svo eru allir að segja: Ég veit hvað það er erfitt að vera unglingur. Afhverju ekki að leyfa okkur aðeins meira svo að þetta sé ekki svona erfitt? Við erum komin á þann aldur að við getum tekið ábyrð á ýmsu en svo er annað sem við megum ekki gera fyrr en við erum orðin "þetta" gömul. Hugsunin á bak við það er svolítið skrítin. Ok, ég er með t.d. Davíð í FB á fyrstu önn og hann á afmæli 11 mánuðum á eftir mér. Er hann ekki alveg jafn þroskaður og ég, hann er búinn að ganga í gegnum alveg það sama og ég. Búinn að vera í skóla í jafn mörg ár og man það sem hann þarf, breyta þessir 11 mánuðir einhverju? Þegar hann má byrja að læra á bíl, þá má ég byrja að reyna við skriflega prófið. Afhverju ekki að miða bara ALLT við árið sem maður fæðist eða bara við daginn sem maður fæðist.

Allavegana, þá er ég að búa til disk til að taka með á röltið. Ég get ekki sofnað og ég nenni ekki að vera í tölvunni, þannig að ég fer bara eitthvað út að rölta.

Sjáumst á morgun

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 03:39:25 / helgi

Time, time for you

Ég fór á útitónleika á Lækjartorki á laugardaginn. Þar spiluðu I adapt og Sign. Ég horfði á I adapt en fannst ekki mikið af Sign, þannig að ég fór bara að tala við fólkið sem var á svæðinu.

Við fórum með myndavélina hennar Jóhönnu í skúrinn um daginn og vorum að leika okkur að taka myndir. Þær komu allt í lagi út, setti videó af okkur á netið, hjá tónlistinni.

Núna á ég bara eftir 2 próf, stærðfræði og náttúrufræði prófin. Mjög létt fög, þótt að ég sé meira að segja á hraðferð í stærðfræði. En eftir það verð ég alveg kominn í jólafrí.

Eins og fyrr hefur verið sagt og skrifað þá eru Evoked að fara að spila þann 16.des í Hellinum. Check it

Enn ein vika, en meira af tónlist.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 02:52:39 / helgi

Þegar allt er smátt, segja menn fátt

Nú er skólinn alveg að verða búinn, þannig að ég er bara að klára prófin og hanga með strákunum þessa daga. Reyndar er ég búinn að snúna sólarhringnum frekar mikið á hvolf en það er allt í lagi, hentar mér vel í prófunum.

Við ætlum að halda áfram með upptökurnar eftir tónleikana. Æfa fram að þeim og klára prófin.

Ég fór á forsýningu á Saw II áðan. Ég var ekki búinn að sjá gömlu myndina en ég gat alveg vel fylgst með. Mér fannst hún mjög góð, kannski ekki alveg mynd fyrir alla.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 15:42:45 / helgi

WHERE HAVE YOU GONE?!?!?!

Að vera stressaður fyrir próf er bara hugarástand, slappiði af. Ok kannski svo mikið að þið bara hættir að hugsa um þetta og fallið svo á prófinu. Hugsið, æ ég er að fara í próf, hvað er það versta sem getur gerst? Ok kannski ekki alveg en samt, slappiði aðeins á. Núna eru prófin í FB að fara að byrja, og sjá framan í suma þegar maður nefnir að prófin séu að fara að koma. Þau verða græn eða fjólublá í framan.

Fór til Boga í gær. Við vorum 4 að lana í smá tíma, svo fór Gunni. Þannig að eftir það var bara svona chill. Reyndar spiluðum við nokkra leiki en ekki marga.

Það er búið að bjóða okkur að spila á tónleikum með Amor e morte, Atrum og Severed Crotch (a.m.s.) Hlakka til þess, held að dagsetningin sé 16 des. STAY TUNED FOR MORE NEWS AFTER THIS.

Fór á tónleika um daginn, sjá fyrra blogg. Það var mjög gaman, var ekki búinn að sjá Terminal lengi.

Er að hugsa málið hvað ég eigi að gera í kvöld, langar að gera eitthvað sem stuð er í, ég er bara búinn með allan peninginn minn :( Ég veit að ég er eyðsluseggur en samt, þetta hefur bara hitt illa á. Vantar líka inneign.

Ef þið eruð með hugmyndir fyrir kvöldið, comment your arse of.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 00:41:42 / helgi

Grap the weel!!!

Hvað er með heilann okkar? Afhverju þurfum við að anda frá okkur með hikum og gera einhver hljóð þegar eitthvað er "fyndið" Hvað er að vera "fyndin" any way? Er "fyndni" afstætt hugtak eða er þetta eitthvað sem fær heilann til að leysa úr læðingi einhverju enn öðru efni svo okkur líði vel? Hef ekki hugmynd, ef þú veist það eða hefur einhverja góða skíringu á kímni og kímnigáfu, well, then GIVE ME A COMMENT

Á morgun eru góðir tónleikar í TÞM. Þar verða JERICHO FEVER, TERMINAL WRECKAGE, THE BEST HARDCORE BAND IN THE WORD og STF. Ég fer hvað með þig?

Er í skólanum á fullu, önnin er að verða búin.

Ógeðslega eru At the drive in góðir. Ég setti nokkur lög með þeim í lög vikunnar.
HLUSTAÐU.

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 04:14:54 / helgi

I can´t forget the way you tropped down

Afhverju að vera með einhver leiðindi yfir einhverju sem þú gætir auðveldlega litið framhjá? Til að vera sjálfselsk, að halda að þú eigir meiri rétt á að fá það sem þú vilt en aðrir? Til að pirra einhvern, til að þú fáir smá útrás á reiði þinni sem hefur búið þér að innan frá barnæsku þinni? Eða bara til að vera tík/karlremba???



Ég fór á Hvammstanga með KSS fólki. Það var mjög gaman. Heh ég vissi ekki einu sinni hvar hann var á landinu, ég og landafræði :). Ég fékk að spila á gítar í messunni og svo í kirkjunni upp á hæðinni. Það var gaman, fínt að æfa sig í að spila eftir gripum í lagi sem maður þekkir ekki.



Ég var að vonast eftir því að Evoked myndi spila á GBOB (Global battle of the bands) en strákarni vildu það ekki. En jæja, svona er það að vilja ekki spila á tónleikum með öðrum hljómsveitum.



Ég er að hugsa að halda tónleika í Undirheimum eftir prófin, veit ekki hvort að við fáum Undirheima þá en við sjáum til. Veit ekki alveg hvaða hljómsveitir verða en ef þú er með einhverjar í huga sem þér langar að sjá, þá máttu endilega koma með comment á þetta blogg og skrifa þína óskahljómsveit.



Ég bætti meira í Tónlist vikunnar, vona að einhver sé að hlusta á þetta.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3